Hágæða drykkir gerðir af vandvirkni
Hjá Vandað snýst allt um gæðin
Vandað hefur frá 2018 gert hágæða drykki í hjarta Reykjavíkur, fyrir kröfuharða neytendur. Vörur okkar og vörumerki endurspegla gæði og fjölbreytileika.
Allar vörur okkar eru framleiddar af mikilli fagmennsku. Slagorð okkar er Gríðarlega Vandað. Það felur í sér kjarnann í okkar starfsemi; Vönduð vinnubrögð, vönduð vara.
Vandað hefur frá stofnun þeirra verið meðlimur í Samtökum íslenskra handverskbrugghúsa. Samtökin hafa að markmiði að auka vitund og gildi íslenskra handverksbrugghúsa um land allt.
Vörumerkin okkar
Við rekum brugghús í hjarta Reykjavíkur sem selur vörur sínar út um allt land undir vörumerkjunum RVK Bruggfélag og RVK Brewing Co.
Auk þess erum við með tvær bruggstofur sem bjóða vörur okkar beint til viðskiptavina.
RVK bruggfélag og RVK Brewing Co. hafa frá 2018 verið leiðandi merki í handverksbjór á Íslandi; það stendur fyrir gæði og frumleika
RVK Bruggstofan í Tónabíói opnaði í júní 2024. Þar eru 22 kranar af úrvals bjór frá RVK.
Einning er þar að finna Bjórbúð RVK með ferskum bjór til að taka með heim.
RVK Borgin opnaði síðla árs 2026 við Austurvöll. Þar eru 20 kranar auk einu bjórpumpu á Íslandi fyrir ógleymanlega bjór upplifuni.
Hafðu samband
Vandað ehf. kt. 540317-1860
Skipholt 33, 105 Reykjavik
vandad@vandad.is
+(354) 588-BEER (2337)