RVK Borgin
Bruggstofa RVK í miðbæ Reykjavíkur
Opnað í lok árs 2026
RVK Bruggfélag Borgin
Heimili handverksbjórs í Reykjavík
RVK Bruggfélag í Tónabíói er besti staðurinn til að koma og smakka á bjórum RVK Bruggfélags. Í bruggstofunni í Tónabíói eru 22 kranar af ferskum bjór sem bruggaður er í brugghúsum félagsins í Skipholti. Allur bjór er geymdur og dælt úr kældu rými, ferskur frá framleiðslu beint í glas; það verður ekki betra. Listi yfir það sem er á krana í dag er að finna hér að neðan.
Þar er líka hágæða kaffivél og þægilegt rými til að njóta annara veitinga en bjórs. Við stefnum á að bjóða upp á léttar matarveitingar á komandi mánuðum, en fáum líka oft matarvagna í heimsókn um helgar.
Í bruggstofu RVK er að finna bjórbúð til að kaupa bjór til að taka með út úr húsi beint frá framleiðslustað, hvort heldur í dósum eða í dunkum fylltum beint af krana; ferskari verður bjórinn ekki til að njóta í heimahúsi. Bjórbúðin er opin á opnunardögum bruggstofunnar, en lokuð á sunnudögum og frídögum.
Sjá Facebook síðu RVK Bruggfélags Tónabíó og vefsíðu Tónabíós fyrir viðburði og hvað er á döfinni í Tónabíói.
Við mælum með að stærri hópar láti vita fyrirfram um komu sína, sjá nánar á vefsíðu bruggstofu Tónabíós.
Pósthússtræti 9, 101 Reykjavík s: 588 2337
Opnunartímar:
Sun - þri: 15-22
Mið: 13-22
Fim: 13-23
Fös - lau: 13-24
Við getum haft lokað á einstaka frídögum, eins og jólum og páskum. Við tiltökum slíkar lokanir á upplýsingasíðu Google
RVK Borgin
Pósthússtræti 9
101 Reykjavík
info@tonabio.is
Sími 588-2337